Bjarni býr til hrægamm úr máfi SB skrifar 25. ágúst 2010 20:15 Eyþór Arnalds, forseti bæjarstjórnar Árborgar.
Eyþór Arnalds, forseti bæjarstjórnar Árborgar, segir sveitarfélagið skoða það alvarlega að segja upp samningi við umhleðslustöð á gámasvæði Árborgar. Ástæðan er slæmur frágangur umhleðslustöðvarinnar sem hefur orðið þess valdandi að vargur hefur haft nægt æti í sumar og gert bæjarbúum lífið leitt. „Við vorum á móti þessum samningi í upphafi og nú er að koma í ljós að skilyrðum hans hefur ekki verið fylgt," segir Eyþór. „Það er hægt að skjóta varginn en betra er að ráðast á rót vandans sem er rusl á víðavangi. Við erum að skoða að segja þessum samningi upp ef ekki verður úr bætt." Nýlega voru tekin til afgreiðslu erindi á vettvangi bæjarráðs Árborgar frá aðilum sem sóttu um leyfi til að skjóta varg í sveitarfélaginu. Meðal annars barst beiðni frá lögreglumanni á Selfossi sem vildi skjóta varg og önnur meindýr í sveitarfélaginu. Talsverðar umræður spunnust um þessi mál þar sem Bjarni Harðarson, fulltrúi Vinstri Grænna, bókaði óánægju sína með afgreiðslu meirihlutans á málinu.Bjarni Harðarson gagnrýnir sveitarfélagið fyrir að tefja afgreiðslu mála tengdum fækkunar á vargi.Í bókunum sínum segir Bjarni bera á mótsögnum í viðbrögðum meirihlutans. Annarsvegar sé rætt um vandamálið með varginn en hins vegar sé tafið eftir fremst megni að afgreiða erindi frá lögreglumanninum sem hafi boðist til eyða vargfuglinum, sveitarfélaginu að kostnaðarlausi. Í samtali við Vísi segir Bjarni: „Ég er í raun að gera athugasemdir við að á sama tíma og menn sjá aukningu á vargi hafa menn ekki verið tilbúnir að beita sér fyrir aðgerðum í þá veru að fækka honum. Umhleðslustöðin á gámasvæði Árborgar er til komin vegna þess að sorp á suðurlandi er keyrt til Reykjavíkur til urðunar. Af hagkvæmnisástæðum er ódýrara að flytja það á stærri bílum til borgarinnar og því er sorpinu fyrst ekið á umhleðslustöðina þar sem því er safnað saman og komið á stærri bíla. Frágangi á svæði umhleðslustöðvarinnar hefur hins vegar verið ábótavant og því hefur mávinum fjölgað, Bjarni bendir á að flugmálastjórn hafi gert athugasemdir við notkun á flugbrautinni út af mávinum og þá sé útrennsli á sorpi skammt frá þar sem mávarnir sitji að veislu. Eyþór Arnalds svarar athugasemdum Bjarna á þann veg að erindi lögreglumannsins hafi ekki verið nægilega skýrt. Hann hafi beðið um leyfi til að skjóta varg „og önnur meindýr" og þeir hafi einfaldlega viljað fá nánari skýringar. Stundum sé erfitt að skilgreina hvað sé meindýr... „Mér skilst nú að einhverntíman hafi verið sótt um til sýslumannsins að fá skotleyfi á framsóknarmenn," segir Eyþór í léttum dúr og bætir við: „Ég held að Bjarni sé ekki að búa til úlfalda úr mýflugu í þessum máli - heldur hrægamm úr máfi."
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Fleiri fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Sjá meira