Að hætti ömmu Sirríar 5. nóvember 2010 11:00 Hemmi og Valdi á góðri stundu. Mynd / Valgarður Gíslason "
Núna rignir yfir okkur jólahlaðborðsauglýsingum þar sem taldir eru upp strútshalar í einhverjum framandi sósum, sem enginn kannast við að hafa borðað á jólum! Við vildum búa til heimilislegt "ömmu jólahlaðborð" á Tíu dropum, með smá nýjungum," segir Hermann Fannar Valgarðsson, annar tvíeykisins Hemma og Valda. Þeir félagar tóku við rekstri kaffihússins Tíu dropa fyrir rúmu ári en fyrir ráku þeir kaffihúsið Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda á Laugaveginum. Hermann segir kræsingarnar á jólahlaðborði Tíu dropa allar eldaðar upp úr uppskriftum frá fjölskyldum þeirra sjálfra og á matseðlinum má meðal annars sjá rétti eins og Karrísíld með eplum og hænueggjum að hætti ömmu Sirríar. "Við höfum safnað uppskriftum frá ömmum okkar og víðar. Ragnar Pétursson kokkur býr meðal annars til rækjumús sem mamma hans fann upp og enginn hefur smakkað utan hans fjölskyldu. Ragnar er mjög sniðugur og útsjónarsamur og á matseðlinum er matur sem allir ættu að þekkja en með einhverjum smá breytingum. Þetta eru ekki margir réttir, við vildum frekar gera hvern rétt veglegan. Það fer enginn svangur héðan." Kaffihúsið Tíu dropar tekur um fimmtíu manns í sæti og verða jólahlaðborðin á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldum. Hermann lofar huggulegri stemmingu, gestir þurfi ekki að flýta sér að borða. "Fólk getur setið rólegt fram eftir kvöldi. Það er sniðugt fyrir hópa að koma saman á Tíu dropa því héðan er stutt að rölta í gleði í bænum eftir matinn. Eins verða óvænt skemmtiatriði á jólahlaðborðinu og eins víst að harmonikkuleikari detti inn og taki nokkur lög." heida@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Fleiri fréttir Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Sjá meira