Fjallabræður sitja eftir heima 29. maí 2010 07:30 Karlakórinn vinsæli hefur hætt við að syngja á evrópskri menningarhátíð í Manchester. fréttablaðið/gva „
Þetta er hundfúlt. Það var búið að safna peningum fyrir þetta,“ segir útvarpsmaðurinn og Fjallabróðirinn Ólafur Páll Gunnarsson. Karlakórinn Fjallabræður hefur hætt við að syngja á evrópskri menningarhátíð í Manchester á morgun. Þetta áttu að vera fyrstu tónleikar sveitarinnar erlendis en þeir verða að bíða betri tíma. Þetta hljóta að teljast mikil vonbrigði fyrir þennan hressa karlahóp, sem gaf út sína fyrstu plötu fyrir síðustu jól. „Þeir gátu ekki mætt okkar tæknilegu kröfum þegar allt kom til alls. Þegar við förum, fjörutíu til fimmtíu manns, til útlanda til að syngja í þrjú kortér þarf þetta að minnsta kosti að vera þannig að við séum ánægðir,“ segir Óli Palli. „Þetta var vesen með græjur. Þeir gátu ekki mætt okkar óskum í því, þannig að við ákváðum bara að hætta við. Það er meira en að segja það að fara með þennan hóp út og það var ákveðið að betur væri setið heima.“ Annar Fjallabróðir, Stefán B. Önundarson, útskýrir að stærðin hafi einfaldlega fellt kórinn í þetta sinn. Meðal annars hafi Manchester-menn ekki átt nógu marga hljóðnema handa þeim. „Við vorum búnir að fjármagna þetta með sölu á klósett-pappír og berjatínum en því miður gekk þetta ekki.“ Að sögn útvarpsmannsins Óla Palla hafa forsvarsmenn hátíðarinnar boðið Fjallabræðrum á aðra hátíð sem verður haldin í september, þar sem auðveldara verður að verða við óskum þeirra. „Það koma tækifæri eftir þetta,“ segir hann og greinilegt að Fjallabræður eru ekki af baki dottnir þrátt fyrir vonbrigðin. - fb
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira