Í tónleikaferð með dönsku söngkonunni Tinu Dico 10. desember 2010 14:00 Helgi Hrafn er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með Tinu Dico. fréttablaðið/anton
Helgi Hrafn Jónsson er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með dönsku söngkonunni Tinu Dico. Þau spiluðu saman á tuttugu tónleikum í Danmörku fyrir skömmu. Tónlistarmaðurinn Helgi Hrafn Jónsson fer í mánaðarlanga tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin í febrúar með dönsku söngkonunni Tinu Dico. Helgi er nýkominn heim úr tónleikaferð með henni um Danmörku þar sem þau spiluðu saman á tuttugu tónleikum. „Hún er einn stærsti kvenlistamaðurinn í Danmörku þannig að þetta er frábær kynning fyrir mig,“ segir Helgi Hrafn, sem bæði hitar upp fyrir Dico og spilar undir hjá henni á tónleikum og syngur. „Þetta hefur verið alveg æðislegt og það hefur verið uppselt á hverja einustu tónleika.“ Helgi kynntist söngkonunni þegar hann var á tónleikaferð í Bandaríkjunum fyrir tveimur og hálfu ári með færeyska tónlistarmanninum Teiti. „Þau eru góðir vinir og hún var með okkur í nokkra daga í Ameríku og í Kanada. Ég kynntist henni þar og um sumarið bað hún mig um að syngja með sér dúett á plötu, sem var upphafið af okkar samstarfi. Það varð ekki aftur snúið eftir það,“ segir hann. „Tina er alveg frábær. Við syngjum mikið saman í prógramminu og raddirnar okkar blandast vel saman. Það er gaman að vinna með henni og þetta er mjög gefandi fyrir mig.“ Dico hefur enn ekki haldið tónleika hér á landi, þó svo að hún hafi komið hingað nokkrum sinnum, og Helgi Hrafn hefur sjálfur ekki spilað hér í langan tíma en vonast til að breyting verði á því á næsta ári. Helgi, sem gaf út sína aðra sólóplötu í fyrra, hefur haft í nógu að snúast á þessu ári eins og undanfarin ár. Hann hefur spilað á um eitt hundrað tónleikum á árinu en er núna kominn heim í tveggja mánaða hlé frá tónleikahaldi sem er lengsti tíminn sem hann hefur dvalið samfleytt á Íslandi í ellefu ár. Hér heima hefur hann tekið upp og útsett tónlist fyrir listamenn á borð við Damien Rice, Tinu Dico, þýsku hljómsveitina Funkstörung og Þjóðverjann Philipp Poisel. Fyrir tveimur árum spilaði hann á básúnu með Sigur Rós á tónleikaferðalagi hennar um heiminn og hitaði einnig upp fyrir sveitina. Fram undan hjá Helga eru upptökur á þriðju sólóplötunni, auk þess sem hann spilar með Dico í janúar á Eurosonic-bransahátíðinni. Þar koma einnig fram Dikta, Ólöf Arnalds, Who Knew, Endless Dark og Lára. Einnig eru sólótónleikar fyrirhugaðir í Danmörku, Berlín og í Austurríki í janúar áður hann heldur í enn eitt ævintýrið með Tinu Dico. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Festist í lyftu í New York Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Fleiri fréttir Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Sjá meira