Lífið

Í tónleikaferð með dönsku söngkonunni Tinu Dico

Helgi Hrafn er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með Tinu Dico. fréttablaðið/anton
Helgi Hrafn er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með Tinu Dico. fréttablaðið/anton
Helgi Hrafn Jónsson er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin með dönsku söngkonunni Tinu Dico. Þau spiluðu saman á tuttugu tónleikum í Danmörku fyrir skömmu.

Tónlistarmaðurinn Helgi Hrafn Jónsson fer í mánaðarlanga tónleikaferð um Bretland og Bandaríkin í febrúar með dönsku söngkonunni Tinu Dico. Helgi er nýkominn heim úr tónleikaferð með henni um Danmörku þar sem þau spiluðu saman á tuttugu tónleikum.

„Hún er einn stærsti kvenlistamaðurinn í Danmörku þannig að þetta er frábær kynning fyrir mig,“ segir Helgi Hrafn, sem bæði hitar upp fyrir Dico og spilar undir hjá henni á tónleikum og syngur. „Þetta hefur verið alveg æðislegt og það hefur verið uppselt á hverja einustu tónleika.“

Helgi kynntist söngkonunni þegar hann var á tónleikaferð í Bandaríkjunum fyrir tveimur og hálfu ári með færeyska tónlistarmanninum Teiti. „Þau eru góðir vinir og hún var með okkur í nokkra daga í Ameríku og í Kanada. Ég kynntist henni þar og um sumarið bað hún mig um að syngja með sér dúett á plötu, sem var upphafið af okkar samstarfi. Það varð ekki aftur snúið eftir það,“ segir hann. „Tina er alveg frábær. Við syngjum mikið saman í prógramminu og raddirnar okkar blandast vel saman. Það er gaman að vinna með henni og þetta er mjög gefandi fyrir mig.“

Dico hefur enn ekki haldið tónleika hér á landi, þó svo að hún hafi komið hingað nokkrum sinnum, og Helgi Hrafn hefur sjálfur ekki spilað hér í langan tíma en vonast til að breyting verði á því á næsta ári.

Helgi, sem gaf út sína aðra sólóplötu í fyrra, hefur haft í nógu að snúast á þessu ári eins og undanfarin ár. Hann hefur spilað á um eitt hundrað tónleikum á árinu en er núna kominn heim í tveggja mánaða hlé frá tónleikahaldi sem er lengsti tíminn sem hann hefur dvalið samfleytt á Íslandi í ellefu ár. Hér heima hefur hann tekið upp og útsett tónlist fyrir listamenn á borð við Damien Rice, Tinu Dico, þýsku hljómsveitina Funkstörung og Þjóðverjann Philipp Poisel. Fyrir tveimur árum spilaði hann á básúnu með Sigur Rós á tónleikaferðalagi hennar um heiminn og hitaði einnig upp fyrir sveitina.

Fram undan hjá Helga eru upptökur á þriðju sólóplötunni, auk þess sem hann spilar með Dico í janúar á Eurosonic-bransahátíðinni. Þar koma einnig fram Dikta, Ólöf Arnalds, Who Knew, Endless Dark og Lára. Einnig eru sólótónleikar fyrirhugaðir í Danmörku, Berlín og í Austurríki í janúar áður hann heldur í enn eitt ævintýrið með Tinu Dico.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.