Hafnarstjóri í Landeyjahöfn: „Margir bílar eru stórskemmdir“ 1. ágúst 2010 12:57 Frá Landeyjahöfn þar sem maðurinn stórskemmdi marga bíla.
Ökumaður, sem er grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur, ók á átta kyrrstæða bíla við Landeyjahöfn um eitt leytið í nótt. Fjórir bílar, auk bílsins sem maðurinn ók, eru óökufærir, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Hvolsvelli. Svo virðist sem hann hafi straujað eina röðina á bílastæðinu við Landeyjahöfn. Tvö voru í bílnum og var ökumaðurinn handtekinn á staðnum í nótt, og reyndist hann, auk þess að vera undir áhrifum fíkniefna og áfengis, ökuréttindalaus. Lögreglan hefur reynt að ná sambandi við eigendur bílanna en þeir eru allir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Sigmar Jónsson, hafnarstjóri í Landeyjahöfn, segist hafa séð ummerkin í morgun. „Ég sá ummerkin eftir hann þegar ég keyrði þarna fram hjá í morgun. Margir bílar eru stórskemmdir," segir hann. Ekki er vitað hvað maðurinn var að þvælast á svæðinu, en síðasta ferð með Herjólfi fór klukkan níu í gærkvöldi og sú fyrsta í dag fór klukkan tólf. „Herjólfur var ekkert á ferðinni svo ég veit ekki hvað hann ætlaði sér." Herjólfur fór, sem fyrr segir, í sína fyrstu ferð í dag klukkan 12. Sigmar segir að nánast hafi verið fullt í þá ferð. Þá er næsta ferð klukkan þrjú, og svo sex og níu. Búist er við því að um þúsund manns fari með Herjólfi í dag. Hann byrjar svo að sigla klukkan hálf átta í fyrramálið, til að ferja þjóðhátíðargesti í land, og mun sigla nánast stanslaust fram á fimmtudag, segir Sigmar.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira