Innlent

Lyf sem kemur í veg fyrir að amfetamínfíklar falla

Frá Vogi
Frá Vogi
SÁÁ rannsakar nú lyf sem á að koma í veg fyrir að amfetamínfíklar falla. Lyfið heitir naltrexone og hefur verið nota í nokkur ár við áfengissýki með nokkrum árangri. Á vefsíðu SÁÁ segir að öllum undirbúningi sé nú lokið og öll leyfi liggja fyrir. Rannsóknarstarfið hófst á Vogi í síðustu viku.

„Það er undirstofnun bandaríska heilbrigðisráðuneytisins, NIDA, sem kostar rannsóknina að mestu en nokkur kostnaður mun falla á SÁÁ. Ekki hefur tekist að fá innlenda aðila til að styrkja rannsóknina enn sem komið er," segir á síðunni. Þar segir einnig að lyfið sé dýrt en rannsóknin sé möguleg vegna þess að lyfjafyrirtækið Alkermers lætur lyf og lyfleysur af hendi endurgjaldslaust. Að öðru leyti kemur ekki fjárstyrkur frá því fyrirtæki.

Pennsylvanina háskólinn í Bandaríkjunum er samstarfsaðili SÁÁ í rannsókninni.

„Lyfjarannsóknin er tvíblind sem kallað er og verður sjúklingum gefin forðasprauta ( VIVITROL ) einu sinni í mánuði í hálft ár. Sjúklingar fá að öðru leyti venjulega meðferð við sinni fíkn og sækja göngudeildarstuðning að stofnanameðferðinni lokinni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×