Tvö höfuð Jóhannesar 4. febrúar 2010 06:00 Jóhannes Haukur hjá höfðunum tveimur sem hafa „ógeðslega áferð“ að hans mati.
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur Þorgeir Hávarsson í leikritinu Gerplu sem frumsýnt verður 12. febrúar. Leikmunadeild Þjóðleikhússins er tilbúin með fremur óhefðbundinn leikmun tengdan honum. „Manni finnst þetta svolítið óhugnanlegt, sérstaklega að þetta eru eftirmyndir af manni,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson. Honum brá heldur betur í brún þegar hann rölti niður í leikmunadeild Þjóðleikhússins fyrir skömmu. Höfuð hans hafði þá verið steypt í silíkon. Starfsmenn deildarinnar voru að leggja lokahönd á höfuð Þorgeirs sem verða notuð í sýningunni. Tvö silíkonhöfuð hafa verið búin til, eitt sem lítur út fyrir að vera nýhöggvið af búknum og annað sem er farið að rotna. „Það var rosalega erfitt að sitja inni í þessu móti. Það tók fjörutíu mínútur og ég þurfti að sitja útataður í silíkon-dóti. Svo eru þeir búnir að föndra við þetta í rúman mánuð og þetta er útkoman,“ segir Jóhannes sem finnst áferðin á höfðunum sérlega ógeðsleg. Leikritið, sem Baltasar Kormákur leikstýrir, er byggt á Gerplu og fer Björn Thors með hlutverk hins fóstbróðurins, Þormóðs, sem fær höfuð Þorgeirs sent til sín. Jóhannes tekur fram að hann fái alveg að leika í sýningunni þrátt fyrir höfuðleysið. „Við fáum líka að sjá áður en ég er drepinn. Svo er ákveðinn kafli þar sem höfuðið sér bara um þetta fyrir mig og ég er bara í kaffisopa.“ Undirbúningurinn fyrir verkið hefur verið langur og hafa æfingar verið haldnar með hléum síðan í maí í fyrra. „Það eru fjórtán mánuðir síðan Baltasar talaði fyrst við mig um að gera þetta. Þetta er búin að vera löng fæðing en skemmtileg og það er bara endaspretturinn eftir,“ segir hann. „Þetta er uppáhaldsbók margra og það eru margir spenntir að sjá hvernig til tekst. Ég held að við getum verið stolt af því sem við erum að gera. Ég held að fólk eigi eftir að verða ánægt með þetta.“ -fb
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira