Lífið

Skutluskáldið Tobba gefur út í dag

Þorbjörg Marinósdóttir gefur út sína fyrstu skáldsögu, Makalaus, í dag. 
Fréttablaðið/Stefán
Þorbjörg Marinósdóttir gefur út sína fyrstu skáldsögu, Makalaus, í dag. Fréttablaðið/Stefán

Fjölmiðlakonan Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, gefur út sína fyrstu bók, Makalaus, í dag. Í bókinni fjallar Tobba hispurslaust um íslenska stefnumótamenningu og að sögn útgefanda bókarinnar er þetta skutluskáldskapur af bestu sort.

„Þetta er skáldsaga sem fjallar um einhleypa stelpu í Reykjavík og samskipti hennar við hitt kynið en flestir atburðir bókarinnar eru byggðir á raunverulegum atburðum,“ útskýrir Þorbjörg. Hún hefur haldið úti bloggi á DV.is í rúmt ár og kveðst fljótlega hafa tekið eftir því að þær færslur sem voru hvað mest lesnar voru þær er fjölluðu um samskipti kynjanna og því hafi hún ákveðið að skrifa bók um efnið.

„Mig minnir að hver færsla sem fjallaði um samskipti kynjanna hafi verið lesin af um sjö þúsund manns og af því að dæma er augljóst að það er markaður fyrir skáldskap sem þennan hér á landi. Það sem kom mér kannski hvað mest á óvart var að kynjahlutfall lesenda var næstum jafnt og karlarnir voru jafn duglegir að tjá sig um færslurnar og konurnar. Mér fannst líka fyndið hvað þeir upplifðu hlutina allt öðru vísi en við og það er kannski svolítið kjarni bókarinnar; hvað við upplifum hlutina á mismunandi hátt.“

Skutluskáldskapur er gríðarlega vinsæll bókaflokkur erlendis og fjalla bækurnar flestar um ungar framakonur og leit þeirra að hinum eina sanna. Á Íslandi hafa áður komið út bækur sem flokka mætti sem skutluskáldskap en Þorbjörg telur að Makalaus sé fyrsta bókin sem skrifuð sé sérstaklega með þennan markað í huga.

Innt eftir því hvort búast megi við fleiri bókum frá henni í framtíðinni svarar Þorbjörg því játandi. „Ég er næstum byrjuð á annarri bók. Þegar maður er einhleypur verður maður að skrifa þetta niður og tappa af. Sagan er reyndar það persónuleg að ég er skíthrædd við að hún verði skotin niður en ég verð sátt ef hún fær þó ekki nema eina manneskju til að hlæja upphátt,“ segir Þorbjörg kát.

Útgáfuhóf verður haldið klukkan 17.00 í dag á Austur í tilefni útgáfu bókarinnar.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.