Samningar í höfn hjá Norðuráli á Grundartanga 20. apríl 2010 14:06
Kjarasamningar tókust milli Norðuráls Grundartanga ehf. annars vegar og FIT, VLFA, Stéttarfélags Vesturlands, VR og RSÍ hins vegar, kl. 01.30 aðfararnótt 20. apríl. Fundur hafði þá staðið í rúma 16 klukkutíma. Samningurinn gildir til 31. desember 2014. Þetta kemur fram á vefsíðu Ríkissáttasemjara. Á vefsíðu Verkalýðsfélags Akranes segir að meginkröfur stéttarfélaganna náðust fram í þessari mjög erfiðu kjaradeilu. Samningurinn mun gefa starfsmönnum á 1. ári 11,2% launahækkun, en inni í þeirri tölu er eingreiðsla upp á kr. 150.000 sem verður til greiðslu í maí 2010. Heildarlaun vaktavinnumanna á 5 ára taxta í dag með öllu eru kr. 406.418. Þau munu hækka í kr. 439.418 eða sem nemur kr. 33.000 á mánuði. Laun eru að hækka um kr. 30.000 og upp í tæpar 34.000 kr. á mánuði. Samningurinn mun gilda frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2014. Hafa ber það í huga að launaliðurinn verður laus um næstu áramót og verður þá samið um hvernig þróun launaliða skuli háttað á samningstímanum. Eitt gríðarlega mikilvægt atriði náðist fram í þessum kjarasamningum, en það var að nú munu starfsmenn Norðuráls eiga verkfallsrétt eins og flestir aðrir launþegar þessa lands. En eins og flestir vita þá var gengið frá því í kjarasamningum 1998 að starfsmenn Norðuráls höfðu ekki slíkan rétt. Nú er, eins og áður sagði, búið að ná þessum rétti aftur inn og var það ekki átakalaust. Á heildina litið er formaður Verkalýðsfélags Akraness mjög sáttur með þennan samning, enda náðust fram allflestar meginkröfur okkar eins og áður hefur komið fram. Þessi barátta hefur staðið yfir frá 30. október 2009 eða í tæpt hálft ár og er ein sú alerfiðasta kjaradeila sem formaður hefur tekið þátt í að leysa frá því hann tók við formennsku í Verkalýðsfélagi Akraness, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira