Kanna samhengi milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki 12. september 2010 18:50
Landlæknisembættið kallar eftir upplýsingum frá læknum til að kanna hvort samhengi sé á milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki. 150 þúsund Íslendingar hafa verið bólusettir við inflúensunni. Drómasýki eða narcolepsy er taugasjúkdómur sem veldur svefntruflunum. Fleiri börn hafa greinst með drómasýki á síðustu sex mánuðum í Finnlandi og í Svíþjóð en áður og tilfelli hafa einnig verið tilkynnt í Noregi, Þýskalandi og Frakklandi. Heilbrigðisyfirvöld á Norðurlöndum hafa séð ástæðu til að kanna hvort þessa aukningu megi rekja til bólusetningu við H1N1 inflúensu eða svínaflensu. Það sama er uppi á teningnum hér. „Við höfum verið að senda út spurningalista til lækna sem hugsanlega gætu séð þessa sjúklinga og hversu mörg tilfelli þeir hafa greint á undanförnum árum. Það er byrjunin á þessari rannsókin," segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnarsviði. Hann telur ólíklegt að það séu einhver tengsl milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki. Finnar hafa hætt að gefa bóluefnið en þeir Íslendingar sem eftir því óska geta hæglega fengið sprautu. Íslenska ríkið keypti bóluefni fyrir 380 milljónir króna og til eru 150 þúsund skammtar af efninu á lager. Yfirlæknir segir þó af og frá að menn hafi farið fram úr sér. „Hér á Íslandi voru tæplega 200 einstaklingar sem lögðust inn á sjúkrahús. 20 einstaklingar voru mjög veikir á gjörgæslu í öndunarvélum í langan tíma. Spítalarnir hafa aldrei séð vona slæman innflúensufarald," segir Þórólfur. Það mun enn vera of snemmt að segja að svínaflensufaraldinum sé lokið. Á suðurhvelijarðar, þar sem vetur hefur ríkt, hefur hann verið allskæður svo vel er fylgst með þróuninni hér á Norðurhveli segir yfirlæknir.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira