Jón Ólafs reynir við Elite-keppnina á ný 24. september 2010 10:15 Jón Ólafsson segir að það yrði frábært fyrir ímynd Íslands ef það næðist að halda Elite-fyrirsætukeppnina að ári. Fréttablaðið/Arnþór „
Tíminn var bara of naumur fyrir stjórnvöld að taka á málinu,“ segir Jón Ólafsson, vatnsbóndi með meiru. Athygli vakti þegar fjölmiðlar fluttu fréttir í maí af því að forsvarsmenn Elite-fyrirsætukeppninnar á Íslandi hefðu hug á því að halda Elite Model Look World í nóvember á þessu ári. Jón reynir nú að fá að halda keppnina á næsta ári. Skipaður var stýrihópur um málið á sínum tíma en hugmyndin kviknaði þegar Jón var öskutepptur í Frakklandi af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli. Jón sendi þá póst til góðvinar síns og forstjóra Elite, Bernard Hennet, en skipuleggjendur voru í miklum vanda vegna þess að stjórnmálaástandið í Taílandi, þar sem keppnin átti að vera, þótti ótryggt. Keppnin var svo haldin í Kína eftir miklar bollaleggingar. Jón segir að á þessum tímapunkti hafi menn ekki verið að hugsa um fyrirsætukeppnir, á Íslandi hafi verið hálfgert öngþveiti út af eldgosinu í Eyjafjallajökli og allar hugmyndir gengu út á að bjarga sumrinu og byggja upp ímynd Íslands. „Ég held að það hafi tekist mjög vel og ég er mjög ánægður með það,“ segir Jón. Ísland er þó ekki eitt um hituna því Suður-Afríka og Taíland hafa óskað eftir því að fá að halda keppnina að ári. „Menn þurfa að sýna fram á að það sé stuðningur við verkefnið heima fyrir.“ Jón bætir því við að keppnin gefi miklar tekjur af sér, henni fylgi mikið af túristum og þá sé þetta gott fyrir ímyndina en á næsta ári á að spýta í lófana hvað markaðssetningu varðar og fjölga þeim löndum sem sýna keppnina beint. Talið er að yfir þúsund manns fylgi keppninni beint og um 400 milljónir manna horfi á keppnina um allan heim. - fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Britney farin í meðferð Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira