Endurskoðunarákvæði vantar í fiskveiðistjórnarlögin 22. júlí 2010 04:00 Í lögum um fiskveiðistjórnun segir að ákvörðun um kvótaafnám þurfi stuðning Hafrannsóknastofnunar. Fréttablaðið/Vilhelm
Sjávarútvegur Í lög um fiskveiðistjórnun vantar ákvæði sem gera ráðherra kleift að endurskoða grundvöll upphaflegrar kvótaúthlutunar, svo sem vegna breytinga á útbreiðslusvæði tegunda, breyttra útgerðarhátta, vistkerfisbreytinga eða breyttra veiðiaðferða. Þetta kemur fram í áliti sem Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður vann fyrir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið í júlí í fyrra. Óskað hafði verið eftir áliti á því hvaða leiðir væru færar í afnámi kvótaúthlutunar vegna úthafsrækju og skötusels. Niðurstaða Ástráðs er að lögin bindi hendur ráðherra í því að sé ákveðinn heildarafli, þá beri að ráðstafa honum með úthlutun veiðiheimilda. „Séu veiðar hins vegar gerðar frjálsar er ráðherra ekki heimilt að takmarka þær að öðru leyti,“ segir í álitinu. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti fyrir helgi ákvörðun sína um að gefa rækjuveiðarnar frjálsar næsta fiskveiðiár. Í áliti Ástráðs segir að það verði að óbreyttum lögum þó tæpast gert nema Hafrannsóknastofnunin geri tillögu um slíkt. Hún leggur hins vegar til sjö þúsund tonna aflamark á næsta fiskveiðiári. „Ráðherra þyrfti að undirbyggja slíka ákvörðun vel og því skemur sem tegund yrði haldið utan kvóta því viðkvæmari yrði ákvörðunin fyrir gagnrýni,“ segir í álitinu. - óká
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira