Segir slökkviliðsmenn hafna kjarabótum fyrir þá tekjulægstu Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. ágúst 2010 09:56 Slökkviliðsmenn funda með Launanefndinni í dag. Mynd/ anton.
Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Launanefndar sveitafélaga, segir að slökkviliðs- og sjúkraflutningarmenn hafi hafnað launahækkunum fyrir launalægstu félagsmenn sína þegar þeir höfnuðu kjarasamningum í atkvæðagreiðslu sem forystumenn stéttarfélags þeirra undirrituðu við Launanefndina í fyrrasumar. Launanefndin telur sig skuldbundna til að virða markmið stöðugleikasáttmálans sem undirritaður var í fyrra. Samkvæmt honum eigi að leggja áherslu á að styrkja stöðu þeirra tekjulægstu, eða þeirra sem eru með undir 200 þúsund krónum í dagvinnulaun á mánuði. Meðaldagvinnulaun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna séu töluvert hærri en þessi upphæð. Þá segir Launanefndin að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn séu sá hópur starfsmanna sveitarfélaga sem búi við hvað mest atvinnuöryggi og hafi, vegna mikilvægis starfa þeirra og lögbundinna skyldna, ekki þurft að sæta niðurskurði og sparnaðaraðgerðum í jafn ríkum mæli og margir aðrir starfsmenn sveitarfélaganna. Samningafundur vegna kjaradeilu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við Launanefndina er boðaður í dag. Náist ekki niðurstaða á fundinum er verkfall boðað á föstudag.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira