Latibær berst við offitu í Ameríku 9. febrúar 2010 06:00 Magnús Scheving og félagar hjá Latabæ hafa samið við eitt stærsta fræðsluleikhús í heimi, NTC.
Magnús Scheving og félagar hjá Latabæ hafa samið við eitt stærsta fræðsluleikhús í heimi, NTC eða National Theater for Children. Leikhúsið er í Minneapolis í Bandaríkjunum, hefur verið starfrækt í næstum þrjátíu ár og hefur gott orð á sér fyrir starf sitt með börnum. Að sögn Jordan Jedeikin, framkvæmdastjóra Latabæjar í Ameríku og Kanada, voru það forsvarsmenn leikhússins sem óskuðu eftir samstarfi við Latabæ. „Þetta verður í fyrsta skipti sem leikhúsið leitar í smiðju sjónvarps því hingað til hafa þetta verið frumsamin verk,“ segir Jedeikin en vörumerkið Latibær hefur verið notað til að kynna grænmeti og ávexti í bandarískum skólum. Leikhúsið mun ferðast til þeirra ríkja Bandaríkjanna þar sem offita barna er mest en þar má meðal annars nefna Alabama, Arkansas, Georgia, Illinois, Kentucky, Louisiana og Mississippi. Settir verða upp 25 mínútna leikþættir upp úr þáttunum um lífið í Latabæ. Jordan segir líklegt að í kringum 750 þúsund manns, bæði kennarar, foreldrar og nemendur, muni sjá sýninguna á þessu ári en gert er ráð fyrir því að sýningarferðin hefjist á þessu hausti. Fleira er í smíðum hjá Latabæ í Ameríku því forsvarsmenn American Fruit and Vegetable Processors and Growers Coalition, eða samtök ávaxta- og grænmetisframleiðenda í Ameríku, hafa farið þess á leit að Latibær hjálpi til við að auka neyslu grænmetis og ávaxta í Suður-Ameríku. „Þetta er mjög valdamikill hópur og því mjög gott fyrir okkur að komast í samstarf með þeim,“ segir Jordan. - fgg
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira