Kvíðir fyrir kynlífssenum 9. febrúar 2010 06:30 Robert Pattinson aðalleikari Twilight-myndanna leikur í svæsnum kynlífsatriðum á móti Umu Thurman í næstu mynd sinni.
Robert Pattinson, aðalleikarinn í Twilight-myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífssenum á mótu Umu Thurman í næstu mynd sinni, Bel Ami. Í Bel Ami, sem verður frumsýnd á næsta ári, leikur Pattinson blaðamanninn Georges Duroy sem fikrar sig upp í hæstu hæðir samfélagsins með því að sofa hjá háttsettum konum. Í myndinni mun Pattinson fækka fötum fyrir framan Christinu Ricci, Kristin Scott-Thomas og Umu Thurman. Kvíðir Pattinson mest fyrir því að leika á móti Thurman. „Kynlífssenurnar með Umu trufla mig dálítið. Persóna hennar notar kynlíf sem nokkurs konar vopn og mín persóna hugsar eins og dýr. Það er dálítið mikið af kynlífssenum í þessari mynd, þannig að ég ætlast til mikils af sjálfum mér og það með mismunandi konum," sagði Pattinson. Auk þess að hafa áhyggjur af frammistöðu sinni í Bel Ami hefur Pattinson lýst yfir áhyggjum af gangi mála varðandi fjórðu og síðustu Twilight-myndina, Breaking Dawn. Hann vill að framleiðendur hennar ákveði tökudag sem allra fyrst til að hann geti skipulagt næstu verkefni sín í kringum myndina. Tökum á þriðju myndinni, Eclipse, er þegar lokið og kemur hún á hvíta tjaldið í júlí næstkomandi. „Það væri gott ef maður vissi hvað er að fara að gerast. Það er dálítil byrði að vita ekki hvenær Breaking Dawn fer í tökur. Það er slæmt að eitthvað sé fram undan sem maður veit ekki hvenær verður. Það er erfitt að skipuleggja líf sitt í kringum eitthvað sem maður veit ekkert um," sagði hann. Síðustu tvær Twilight-myndir hafa notið gríðarlegra vinsælda að undanförnu en þær eru byggðar á samnefndum bókum Stephanie Meyer.
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Lífið samstarf „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein