Línur skýrast í Eurovision 9. febrúar 2010 05:00 Hera og keppinautarnir
Línur eru allverulega farnar að skýrast í Eurovision. Hera Björk og lagið „Je ne sais quai" keppa fyrir okkar hönd og freista þess að komast upp úr undanúrslitakvöldinu, þriðjudagskvöldið 25. maí. Andrúmsloftið var rafmagnað þegar Jógvan og Hera Björk stóðu titrandi á pallinum á laugardagskvöldið. Símakosningin var líka hnífjöfn, aðeins 203 atkvæði skildu lögin að. Einhver hefði sem sé getað eytt 20.380 krónum í að koma Jógvani til Oslóar. Það gengur bara betur næst. Á Euro-nördsíðum eru skiptar skoðanir um ágæti sigurlagsins. Margir minnast á að þetta sé alls ekki eins gott lag og „Is it true", sumir að það líkist „This is my life" einum of mikið og sé of fyrirsjáanleg Eurovision-klisja. Aðrir eru þó mun hrifnari. Í vondum riðliBúið er að skipa flytjendum í riðla og það má segja að Ísland hafi lent í „vondum" riðli. Lagið er eitt af sautján sem keppa þriðjudagskvöldið 25. maí og tíu af þeim fara áfram í aðalkeppnina. Ekki er búið að ákveða röð laganna, en þeim hefur verið skipt í tvo hópa. Hera flytur sitt lag í seinni hópnum. Í gegnum tíðina hafa íslensk lög fengið mestan stuðning frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Bretlandi og Portúgal. Af þessum fimm löndum er aðeins Portúgal með okkur í riðli. Finnland er eina Norðurlandaþjóðin auk Íslands í riðlinum. Þarna er Rússland og fjöldi fyrrum ráðstjórnarríkja, en einnig Malta, Grikkland og Belgía. Þýskaland og Spánn, sem fara beint í úrslitaþáttinn, taka þátt í símakosningunni á okkar kvöldi. Í seinni riðlinum, fimmtudagskvöldið 27. maí, eru Danmörk og Svíþjóð, auk þess sem Noregur kýs þetta kvöld. Úrslitin fara svo fram laugardagskvöldið 29. maí með samtals 25 lögum. Enskan á undanhaldiSamtals keppa 39 lög í Eurovision í ár. Lögin detta nú inn eitt af öðru, síðast ísraelska lagið 14. mars. Með íslenska laginu eru átta lög tilbúin. Danir völdu þau Chanée & N'evergreen og lagið „In a moment like this". Það hljómar ekki ósvipað og „Every breath you take" með The Police áður en það hrynur í Eurovision-viðlag. Norðmenn unnu síðast og fara því beint í úrslitaþáttinn. Þeir völdu ægilegan spaða sem heitir Didrik Solli-Tangen og er 22 ára. Lagið er grátbólgin hetjuballaða sem gæti verið með Celine Dion. Finnarnir senda kvennadúettinn Kuunkuiskaajat. Það hefur að skipa tveimur ljóskum sem voru í þjóðlagagrúppunni Värttinä - báðar syngja og önnur spilar líka á harmóniku. Finnar taka þjóðlagavinkilinn á keppnina í ár og syngja fjörugt lagið á sínu gullfallega tungumáli. Enskan virðist á undanhaldi í Eurovision í ár. Lögin virðast oftar sungin á þjóðtungu keppnislandanna en áður. Albanar senda Julíönu Pasha, sem syngur á albönsku, Sviss sendir Michael von der Heide sem syngur á frönsku, rokkarinn Vukašin Braji frá Bosníu og Hersegóvínu syngur á bosnísku og hollenski söngvarinn Sieneke syngur á hollensku. Þótt ekki sé búið að velja lögin hafa Slóvakía, Króatía og Slóvenía tilkynnt að þeirra lög verði flutt á heimatungumálunum. Vonandi fara fleiri þjóðir þessa leið því þá fer Eurovision að standa undir nafni sem dægurlagakeppni allrar Evrópu. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira