Georg Bjarnfreðarson sveitalúði í Ameríku 29. janúar 2010 06:30 Handritið er klárt og talið er nánast öruggt að prufuþáttur eða „pilot“ verði gerður eftir því. Daníel mun eftir sem áður heita Daniel en er í handritinu lýst sem kvennaljóma og Georg verður að sjálfsögðu ekki kommúnisti, enda slíkt bannorð í Ameríku. Í stað þess verður hann hálfgerður „redneck“ eða sveitalúði. Ragnar Bragason leikstýrði íslensku þáttaröðinni.
Ragnar Bragason, leikstjóri Vaktar-þáttanna, hefur lesið handritið að amerísku útgáfunni af Næturvaktinni sem handritshöfundurinn Adam Barr hefur unnið en Barr skrifaði handrit fyrir þætti á borð við Desperate Housewives og Will & Grace. Ekki liggur enn fyrir hvort farið verður í gerð pilot-þáttar eftir handritinu en að sögn Kjartans Þórs Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Saga Film, ætti það að skýrast á næstunni. Örlitlar breytingar hafa verið gerðar á persónum þáttanna eins og gefur að skilja fyrir bandaríska sjónvarpið. Þannig hefur nafni Ólafs Ragnars verið breytt í Tommy en að sögn Ragnars verður sú persóna að mestu leyti óbreytt. „Hann er umboðsmaður einhverrar hljómsveitar og það kemur mér í sjálfu sér ekkert á óvart að hann skuli hafa farið „ómengaður“ inn í handritið, hann er svona ameríski draumurinn holdi klæddur.“ Daniel, sem Íslendingar myndu seint kvitta upp á að væri eitthvert kyntröll, er hins vegar orðinn mikill kvennaljómi í bandarísku útgáfunni og segir Ragnar hafa lesið það út úr handritinu að hann eigi eftir að vera í tygjum við nokkra kvenmenn og að í uppsiglingu sé hugsanlegur ástarþríhyrningur. Þess ber þó að geta að Daníel mun eftir sem áður heita Daniel. Mesta breytingin verður hins vegar á Georg Bjarnfreðarsyni. Ragnar segir það ekki hafa komið sér á óvart. „Georg er náttúrlega kommúnisti í íslensku þáttaröðunum og slíkt er náttúrlega dauðasök í Ameríku, að vera kommi er nánast verra en að vera morðingi. Þannig að hann er gerður að svokölluðum „survivalist“,“ útskýrir Ragnar en slíkir menn eru náskyldir „rednecks“ eða sveitalúðum. „Hann á allavega einhverja þannig vini og hreykir sér af því að geta lifað einn af úti í villtri náttúrunni með einn hníf að vopni,“ segir Ragnar og bendir á að þetta sé nokkuð skondið. „Georg og Ólafur voru náttúrlega andstæður, hin gömlu stórveldi, Sovétríkin og Ameríka.“ Þá segir Ragnar að miklar breytingar hafi verið gerðar á andrúmslofti þáttanna. Í frumútgáfunni hafi þeir leyft sér að hafa langar þagnir og atriði þar sem lítið var að gerast í raun og veru. „Bandaríkjamenn hafa ekki alveg þolinmæði fyrir slíku, þeir vilja meiri keyrslu og meiri hraða, svona svipað og var gert með amerísku útgáfuna af The Office,“ segir Ragnar og bætir loks við að bandaríska útgáfan gerist á bensínstöð í úthverfi Los Angeles. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira