Innlent

Vinnufundi vegna gossins frestað

Gosinu er lokið í bili.
Gosinu er lokið í bili.

Vegna hugsanlegra gosloka er vinnufundi vegna eldgossins í Eyjafjallafjallajökli sem vera átti á morgun, þriðjudaginn 25. maí á Hvolsvelli, frestað um óákveðinn tíma samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum.

Embætti ríkislögreglustjóra í samvinnu við sveitarfélögin Rangárþing eystra, Mýrdalshrepp, Skaftárhrepp og Rangárþing ytra boðaði til þessa fundar.

Aðeins gufustrókur stígur upp frá Eyjafjallajökli, mikil veðurblíða er á Suðurlandi og bjartsýni ríkir í sveitunum umhverfis jökulinn. Bestu þakkir til allra fyrir skjót viðbrögð vegna vinnufundarins, segir svo í lok tilkynningarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×