Innlent

Yfir þrjú þúsund án vinnu í meira en ár

Hér má sjá ungmenni tína rusl í landi Garðabæjar einn góðviðrisdaginn í byrjun júní á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sértækum aðgerðum til að fást við atvinnuleysi meðal ungs fólks. Fréttablaðið/ Vilhelm
Hér má sjá ungmenni tína rusl í landi Garðabæjar einn góðviðrisdaginn í byrjun júní á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sértækum aðgerðum til að fást við atvinnuleysi meðal ungs fólks. Fréttablaðið/ Vilhelm
Gangi spár eftir mun atvinnuleysi í ágúst og september verða minna en í sumar, eða í kringum 7 prósent. Í október eru þó líkur á að fjölga muni á ný á atvinnuleysisskrá.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir reynsluna sýna að atvinnulausum fækki fram í október. Líkur séu á að reyndin verði einnig sú í ár. Átaksverkefni fyrir námsmenn og í viðhaldi hafi gengið vel og fækkað atvinnulausum. „Það tókst að ráða námsmenn að stærstum hluta, í kringum 94 prósent. Við höfum möguleika á að teygja verkefnið fram á sumarið og veita atvinnuleitendum þannig svigrúm,“ segir Gissur, en verkefnið gerði ráð fyrir tveggja mánaða vinnu.

Þá segir Gissur að iðnaðarmönnum hafi fækkað mjög á atvinnuleysisskrá, sem sé raunin á sumrin. Sérstakt átak í viðhaldsverkefnum hafi enn frekar ýtt undir viðhaldsvinnu. Hann býst við 7 prósenta atvinnuleysi í ágúst. „Það er náttúrulega hræðilega mikið, en við erum tiltölulega bjartsýn.“

Á fjórða þúsund manns hafa verið án atvinnu í tólf mánuði eða meira. Gissur segir að sérstöku virkniúrræði verði ýtt úr vör fyrir þann hóp í næstu viku, ekki ósvipað því sem gert var fyrir ungt fólk í janúar.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir atvinnuleysi minnka yfir sumartímann, en líkur standi til að það verði einhverju minna í vetur en í fyrra. Það sé hins vegar ekki búist við umtalsvert minna atvinnuleysi yfir vetrartímann fyrr en veturinn 2011 til 2012.

Árni Páll segir áhyggjur um alla Evrópu snúa að því að örðugra verði að komast í lánsfé á næstu árum og því verði endurreisn efnahagslífsins erfiðari en ella.

„Bæði er minna handbært fé á lánamörkuðum og eins hafa bankar farið mun varlegar í kjölfar mikils taps. Það getur því verið að fyrirtæki muni eiga í erfiðleikum með að búa til ný störf.“

Hann telur að íslenska bankakerfið sem verið sé að koma á fót, verði þó vel í stakk búið til lánastarfsemi. „Vonandi tekst okkur að hreinsa skuldsetninguna út og standa eftir með heilbrigðara bankakerfi.“

- kóp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×