Ólafur Ragnar flutti setningarræðu í Portúgal 19. maí 2010 10:25 Forsetinn ræðir við fréttamenn í Lissabon. Mynd/Alban Bodineau
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í gær, setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu í boði Norður-Suður stofnunarinnar (e. North-South Centre) sem starfar á vegum Evrópuráðsins. Ráðstefnan bar heitið „The 21st Century: A Century of Global Interdependence and Solidarity" og var haldin í ráðhúsi Lissabonborgar í Portúgal. Stofnunin var sett á laggirnar fyrir 20 árum á grundvelli samþykkta þings Evrópuráðsins. Ráðstefnuna sótti fjöldi sérfræðinga sem og fulltrúar alþjóðastofnana og aðildarríkja Evrópuráðsins. Í ræðu sinni fjallaði Ólafur Ragnar um þær miklu breytingar sem orðið hafa í samskiptum Evrópuríkja og þróunarlanda og hvernig breytt valdahlutföll í veröldinni sköpuðu nýjan grundvöll fyrir stefnumótun og alþjóðlega samvinnu, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. Hann rakti hvernig hættan á óafturkræfum loftslagsbreytingum væri nú sameiginlegur vandi allra ríkja. Breytingar á orkukerfum gegndu lykilhlutverki í þeirri baráttu og þróunarlönd hefðu fjölda tækifæra sem tækniþróun undanfarinna ára hefði fært þeim. Ólafur Ragnar átti jafnframt fund í Lissabon með Jorge Sampaio fyrrverandi forseta Portúgals og forstöðumanni bandalags ólíkra menningarheima sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna (e. UN High Representative for the Alliance of Civilisations) en markmið þess er að auka skilning og virðingu milli ólíkra trúarbragða og menningarheima. Ólafur Ragnar ræddi einnig við fréttamenn og fulltrúa portúgalskra fjölmiðla, blaða, tímarita og útvarpsstöðva. Í gærkvöldi sat forseti kvöldverð í boði forseta Portúgals og var viðstaddur verðlaunaafhendingu Norður-Suður verðlaunanna en þau hlutu í ár Mikhail Gorbasjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, og Rola Dashti, þingmaður frá Kúveit og baráttukona fyrir réttindum kvenna.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Fleiri fréttir Formaður Kennarasambandsins segi ósatt Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira