Landsmót hestamanna líklega blásið af Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. maí 2010 12:25 Landsmót hestamanna er fyrirhugað í Skagafirði 27. júní til 4. júlí. Nú stefnir í að mótinu verði aflýst vegna hestapestarinnar svokölluðu.
Landsmót hestamanna sem fyrirhugað er í Skagafirði verður líklega blásið af. Þetta segir Sigurður Ævarsson, mótsstjóri Landsmóts hestamanna. Ef mótinu verður aflýst tapast milljarðar króna í formi gjaldeyristekna. Landsmót hestamanna er fyrirhugað í Skagafirði 27. júní til 4. júlí en um er að ræða eina stærstu fjöldasamkomu sem haldin er á Íslandi og var áætlað að 10-12 þúsund mótsgestir myndu mæta í ár. Nú stefnir í að mótinu verði aflýst vegna hestapestarinnar svokölluðu, en um er að ræða nokkuð hvimleiða veirusýkingu í öndunarfærum sem lagst hefur á stóran hluta íslenska hestastofnsins. Pestin hefur að mestu lamað daglega starfsemi í kringum hestamennskuna, en hún gerir það að verkum að ekki er hægt að þjálfa hross sem á þessum tíma árs ættu að vera í sínu allra besta ástandi. Tekur það hrossin alla jafna um sex til átta vikur að hrista pestina alveg af sér en dæmi eru um að hross sem séu í mjög smituðu umhverfi smitist aftur af veirusýkingunni eftir að hafa náð sér að fullu. Sigurður Ævarsson, mótsstjóri Landsmóts hestmanna, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis núna laust fyrir hádegið að hann teldi að það væru meiri líkur en minni að Landsmótinu yrði aflýst. 2500 útlendingar höfðu boðað komu sína á mótið. Sigurður segir að þeir fjármunir sem tapast ef mótið fellur niður hlaupi á milljörðum króna í formi gjaldeyristekna. Fag- og hagsmunaðilar hestamennskunnar funda klukkan eitt í dag með fulltrúa landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins en þá verður tekin ákvörðun um hvort aflýsa eigi mótinu. Ef það verður niðurstaðan yrði það reiðarslag fyrir Skagfirðinga enda skapar mótið gríðarlega miklar tekjur.
Mest lesið Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Innlent Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Innlent Mjög alvarlegt tilfelli Innlent Hjalti Snær sá sem fannst látinn Innlent Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Innlent Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Innlent Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Innlent Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ Innlent Fleiri fréttir Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Svona verður Sæbraut í stokki Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Margt sem hægt sé að læra af Svíum í baráttunni gegn mansali Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Þjónusta hjálparsímans tryggð Mannskæður eldsvoði, garður ofan á Sæbraut og sviðakjammakaka Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Grímur sjálfkjörinn í sæti Ingvars Tæp tvö þúsund ný leikskólapláss í Reykjavík á næstu fimm árum Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Sjá meira