Röskun flugs Icelandair hefur áhrif á 20 þúsund farþega 20. apríl 2010 11:34 Icelandair hefur lítið náð að fljúga síðan eldgosið skall á með öllu sínu öskugosi.
Icelandair mun í dag fljúga fimm flug til fjögurra Evrópuborga og tvö flug til Bandaríkjanna. Frá því eldgosið í Eyjafjallajökli lokaði flugumferð til og frá fjölmörgum Evrópulöndum fimmtudaginn 15. apríl hafa orðið miklar truflanir á flugi félagsins, þrátt fyrir að Keflavíkurflugvöllur hafi verið opinn allan tímann. Dagana 15.-20. apríl var samkvæmt áætlun Icelandair gert ráð fyrir að fljúga136 flug. Þess í stað hefur Icelandair flogið 76 flug. Alls hefur þessi röskun snert 20 þúsund farþega, hér á landi og erlendis sem áttu bókað flug þessa daga. Rúmur helmingur þeirra hefur komist í flug, annað hvort í sérstök aukaflug eða flug samkvæmt áætlun. Fjölmargir hafa frestað ferðum sínum eða hætt við, og aðrir eru í biðstöðu, sumir enn fastir fjarri heimahögum. Flug til og frá Bandaríkjunum hefur verið með eðlilegum hætti, en Evrópuflug hefur farið mjög úr skorðum. Miklu hefur bjargað að á föstudag 16. apríl var unnt að fljúga 3 aukaflug til Glasgow og sunnudaginn 18. apríl var flogið fimm sinnum til Þrándheims í Noregi. Ekkert hefur hinsvegar verið unnt að fljúga til helstu áfangastaða Icelandair, þ.e. Kaupmannahafnar og London. Sem fyrr er sérstök athygli vakin á því að breytingar geta orðið með stuttum fyrirvara, og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum, komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum og upplýsingum á icelandair.is áður en farið er út á flugvöll.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira