Innlent

Bifhjól og fólksbíll í árekstri

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Karlmaður um fimmtugt var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys á Vesturlandsvegi á móts við Korpúlfsstaðaveg um áttaleytið í fyrrakvöld.

Maðurinn ók bifhjóli og lenti í árekstri við fólksbíl í hringtorgi sem þarna er. Meiðsli bifhjólamannsins voru ekki talin alvarleg. Um klukkustund síðar barst tilkynning um annað umferðarslys í borginni. Um var að ræða harðan, tveggja bíla árekstur á gatnamótum Stórhöfða og Höfðabakka. Ökumaður annars bílsins, átján ára stúlka, var flutt á slysadeild. Meiðslin voru talin minniháttar. Bíll stúlkunnar er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur.

-jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×