Innlent

Ekkert flogið til Vestmannaeyja og Egilsstaða

Reykjavíkurflugvöllur
Reykjavíkurflugvöllur
Ekkert hefur verið flogið til Vestmannaeyja og Egilsstaða í morgun sökum þoku í Reykjavík.

Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands fór ein vél til Ísafjarðar klukkan átta í morgun en svo stöðvaðist allt flug þangað til að ein vél fór til Akureyrar klukkan tíu.

Næsta athugun fer fram rúmlega ellefu og verður þá tekin ákvörðun um hvort farið verður í loftið.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á textavarpinu en einnig eru farþegar hvattir að hafa samband við Flugfélag Íslands.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×