Innlent

Hjóli stolið af uppistandara

Þórdís Nadía uppistandari er ósátt við reiðhjólaþjófa.
Þórdís Nadía uppistandari er ósátt við reiðhjólaþjófa.

„Fundarlaun... ætli ég segi ekki bara þeim sem skilar mér hjólinu brandara," segir uppistandinn Þórdís Nadía en hjólinu hennar var stolið á menningarnótt. Þórdís hefur auglýst eftir hjólinu á Feisbúkk og hótar góðvinur hennar Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA, að senda handrukkara á þjófinn - skili hann ekki hjólinu innan sólarhrings.

„Það er nú bara í gríni," segir Þórdís. „Þetta er bara mjög leiðinlegt mál. Ég keypti mér þetta hjól í sumar á 70 þúsund krónur og skildi það eftir fyrir utan húsnæði Listaháskólans við Sölvhólsgötu því ég var að vinna átján tíma vakt. Svo kem ég á sunnudeginum eftir menningarnótt og þá er hjólið horfið."

Svona lítur hjólið hennar Þórdísar út.

Þórdís er meðal þekktari uppistandari landsins og segist geta lofað öllum þeim sem hafi upplýsingar um hjólið að hún bregðist við á léttu nótunum.

„Mig langar bara að fá það aftur," segir Þórdis og tekur fram að það sé ekkert grín þegar hjólinu manns er stolið,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×