Karl sigursæll í Hollywood 15. febrúar 2010 05:00 Karl Júlíusson vann til verðlauna hjá Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið. Hann var viðstaddur verðlaunaafhendinguna sem fór fram á Beverly Hills Hilton-hótelinu. „
Þetta kom nokkuð á óvart því myndin er gerð fyrir lítin pening. En það er gaman þegar menn taka eftir svoleiðis myndum,“ segir Karl Júlíusson, leikmyndahönnuður, en hann stóð uppi sem sigurvegari á Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið þegar leikmynd The Hurt Locker var valinn sú besta í nútímamyndaflokknum. Avatar fékk verðlaunin í flokki ævintýramynda og Sherlock Holmes-kvikmynd Guy Ritchie fyrir sögulega-flokkinn. Hátíðin var haldin á Beverly Hills Hilton-hótelinu og fékk gamla brýnið Warren Beatty sérstök heiðursverðlaun. Karl var að vonum ánægður með verðlaunin þegar Fréttablaðið vakti hann í Hollywood. „Þetta er mikill heiður því þarna eru það samstarfsfélagarnir sem velja, fagfólkið í þessum bransa.“ Meðal kvikmynda sem urðu að lúta í lægra haldi fyrir leikmynd Karls voru leikmyndir Angels & Demons sem byggð er á samnefndri bók Dan Brown, The Hangover og The Lovely Bones sem Peter Jackson leikstýrir. Karl var á leiðinni yfir til Mexíkó að gera leikmynd fyrir kvikmyndina Cartel sem leikstýrt er af danska leikstjóranum Asger Leth. Josh Brolin leikur aðalhlutverkið en sögusvið myndarinnar er hið miskunnarlausa eiturlyfjastríð sem haldið hefur íbúum stærstu borga Mexíkó í gíslingu. -fgg
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira