Sérfræðingar hafa lært af gosinu 19. júlí 2010 04:30 Joe Sultana hjá Evrópsku flugstjórnarstofnuninni segir að allar aðgerðir varðandi lofthelgi Evrópu muni ganga hraðar fyrir sig gjósi á ný. fréttablaðið/pjetur
Flug í Evrópu myndi ekki raskast á sama hátt og það gerði í maí ef eldgos hæfist nú. Aska úr Eyjafjallajökli lamaði þá nær alla flugumferð í Evrópu. Þetta segir Joe Sultana, yfirmaður hjá Evrópsku flugstjórnarstofnuninni (Eurocontrol) í viðtali við New York Times um helgina. Stofnunin sá um samræmdar aðgerðir í Evrópu þegar öskuský ógnuðu flughelgi. Sultana segir þekkingu sérfræðinga, eldfjallafræðinga og veðurfræðinga vera mun meiri í dag en hún var fyrir gosið og það fari eftir þéttni ösku hvernig samgöngum verði háttað. „Við höfum nú þrjú mismunandi styrkleikastig af ösku. Í fyrsta lagi, þar sem ekki er öruggt að fljúga, í öðru lagi, þar sem flugvélar skulu gæta varúðar og í þriðja lagi þar sem lág þéttni er í ösku og ekki þarf að gera varúðarráðstafanir.“ Sultana segir að jafnframt hafi sú öskuþéttni sem orsaki flugbann hafa verið hækkaða úr tveimur milligrömmum á rúmmetra í fjögur og öll verkaskipting sé nú betur á hreinu. „Við höfum skýrari línur um hver ber ábyrgð á því að taka ákvarðanir um lofthelgi og einstaka flugvélar.“ Öll ákvarðanataka myndi jafnframt ganga fljótar fyrir sig að sögn Sultana. „Við höfum sett upp samræmda einingu, sem myndi starfa sem þungamiðja ákvarðanatöku og bæta öll samskipti.“- jma
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Goddur jarðsunginn Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira