Innlent

Þyrlan sótti konu sem datt af hestbaki í Þjórsárdal

TF-GNÁ fór og sótti konuna en ekki liggur fyrir hversu alvarlega slösuð hún er.
TF-GNÁ fór og sótti konuna en ekki liggur fyrir hversu alvarlega slösuð hún er.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, sótti slasaða konu sem datt af hestbaki innst í Þjórsárdalnum um þrjúleytið í dag. Þyrlan fór í loftið klukkan 15:22 og var lent á slysstað 15:50. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega konan er slösuð en þyrlan var sett í forgang.

Lítið símasamband er á svæðinu og því var ekki ljóst hversu alvarlegt slysið var.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×