Lífið

75 myndir í Grundarfirði

Little penis 
Norska stuttmyndin Little Penis verður sýnd á Northern Wave-hátíðinni í ár.
Little penis Norska stuttmyndin Little Penis verður sýnd á Northern Wave-hátíðinni í ár.

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í þriðja sinn í Grundarfirði helgina 3. til 7. mars. Sýndar verða 75 stuttmyndir og tónlistarmyndbönd frá tuttugu löndum, þar á meðal norska myndin Little Penis. Grundfirðingar munu taka þátt í hátíðinni, meðal annars með því að halda fiskisúpukeppni þar sem sóknarprestur bæjarins, Aðalsteinn Þorvaldsson, verður á meðal keppenda.

Í dómnefnd hátíðarinnar verða Ragnar Bragason, Kristín Jóhannesdóttir og Hilmar Örn Hilmarsson. Klipparinn og leikstjórinn Valdís Óskarsdóttir mun einnig sitja fyrir svörum. Frítt verður á alla viðburðina. Nánari upplýsingar má finna á síðunni Northernwavefestival.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.