Bjargvætturinn á metsölulista 15. febrúar 2010 03:00 Bryndís segir að Bjargvætturinn í grasinu sé frábær bók sem flokkist undir klassík. fréttablaðið/heiða
Bókin Bjargvætturinn í grasinu eftir hinn sáluga J.D. Salinger er í öðru sæti á kiljulista Eymundsson. Salinger lést 27. janúar síðastliðinn og síðan þá hefur áhugi á verkum hans aukist mikið. „Þó að leitt sé að hann hafi dáið er voða gaman að athyglin skuli aftur færast á þessa bók því hún er í stórgóðri þýðingu Flosa Ólafssonar og leitt að hann skuli ekki sjá nafn sitt aftur á mestölulista sem þýðandi,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Eymundsson. Síðan Salingar lést hefur bókin selst í fleiri eintökum í versluninni en allt síðasta ár, sem segir nokkuð um hinn aukna áhuga hér á landi. „Þetta er bók sem er frábær og hún flokkast undir klassík. Þetta er ein af þessum bókum sem kemur vel út úr þýðingu og því ber að þakka Flosa.“ Bjargvætturinn í grasinu kom fyrst út hjá AB-forlaginu árið 1975 í þýðingu Flosa og aftur árið 1982. Þriðja útgáfan kom síðan út 2005 á vegum Skruddu. Ívar Gissurarson hjá Skruddu segir að bókin hafi selst ágætlega í gegnum árin. „Þetta er bók sem rjátlast alltaf út enda „klassíker“ sem flestir þurfa að lesa, ekki síst ungt fólk. Tíðarandinn í henni er algjörlega tímalaus.“ Skrudda ætlaði upphaflega að gefa bókina út með mynd á kápunni en Salinger tók fyrir það. „Salinger var á móti öllum myndum því það mátti ekkert trufla innihaldið,“ segir Ívar. Þá höfðu þegar verið prentaðar um 500 kiljur og var þeim öllum fargað að ósk hins sérvitra Salinger. „Sem betur fer var þetta kilja en ekki harðspjalda bók, þannig að þetta fór ekki illa með okkur fjárhagslega.“ -fb
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira