Gera heimildamynd um heitar laugar á Íslandi 14. ágúst 2010 07:00 Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Helga Sveinsdóttir ferðuðust um landið á puttanum og vinna nú að heimildarmynd um ævintýri sín. Fréttablaðið/
Vinkonurnar Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Helga Sveinsdóttur ferðuðust um á puttanum í sumar og prófuðu heitu laugarnar sem landið hefur upp á að bjóða. „Undirbúningur fyrir verkefnið hófst í kringum síðustu jól eftir að við rákumst á bókina Heitar laugar á Íslandi. Við höfum báðar ferðast mikið erlendis en hingað til hefur það farið forgörðum að ferðast um landið okkar, Ísland. Okkur langaði til þess að ferðast um landið á puttanum og ákváðum að slá tvær flugur í einu höggi og gerast puttaferðalangar og heimsækja flestar heitar laugar landsins í leiðinni," útskýrir Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, sem lagði land undir fót ásamt vinkonu sinni, Helgu Sveinsdóttur. Stúlkurnar höfðu kvikmyndavélar með í för og í haust hyggjast þær gefa út heimildarmynd sem fjallar um ferðir þeirra um landið. Harpa Fönn og Helga húkkuðu sér far alla leið austur á Seyðisfjörð þaðan sem þær héldu áfram upp á hálendi Íslands. Stúlkurnar heimsóttu meðal annars Kárahnjúka, Öskju, Mývatnssveit og Sprengisand og segir Harpa Fönn það hafa gengið misvel að fá far milli staða. „Það var alveg merkilega auðvelt að fá far við hringveginn en það var mun erfiðara á hálendinu, enda færri á ferð um það svæði. Það kom okkur í raun svolítið á óvart hvað Íslendingar voru duglegir að stoppa fyrir puttaferðalöngum." Harpa Fönn segir margar fallegar laugar leynast víða á landinu, en það kom þó fyrir að stúlkurnar yrðu fyrir vonbrigðum. „Við lentum tvisvar í því að koma að uppþornuðum laugum og aðrar voru einfaldlega of heitar til að baða sig í. Flestar voru þó afskaplega notalegar og Kaldbakslaug var eiginlega eins og stór tjörn þar sem við gátum tekið góðan sundsprett." Innt eftir því hvaða laug henni hafi þótt fallegust svarar hún án þess að hika: „Laugin við Laugafell var án efa fallegust. Við náðum að plata hollenska parið sem hafði tekið okkur upp í til að koma með og þau sáu svo sannarlega ekki eftir því," segir Harpa glaðlega. Stúlkurnar héldu úti bloggi meðan á ferðalaginu stóð og hægt er að skoða það á síðunni www.heitarlaugar.blogspot.com. sara@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira