Innlent

Samþykktu vantraust á stjórn

Mynd/Stefán Karlsson

Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga samþykkti á þriðjudag yfirlýsingu um vantraust á stjórn sjóðsins síðastliðið starfsár. Stjórnin eigi að segja af sér og boða aukafund til að kjósa lífeyrissjóðnum nýja stjórn.

Stjórnarmenn eru kosnir til þriggja ára í senn og aðeins var ætlunin að kjósa einn nýjan í fimm manna stjórn á fundinum á þriðjudagskvöld. Þegar komið var að lokum fundarins og búið var að samþykkja að skerða lífeyrisgreiðslur um 10 prósent til viðbótar við 10 prósent skerðingu í fyrra, kom fram tillaga um vantraust á stjórnina. Hún var samþykkt með eins atkvæðis mun. Um 100 sjóðsfélagar sátu þá fundinn.

Ingólfur Guðmundsson, sem tók við starfi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga í febrúar á þessu ári, segir að stjórnin muni væntanlega taka ákvörðun um viðbrögð sín við þessu vantrausti sjóðsfélaga á næsta stjórnarfundi, sem halda á fljótlega.

Ólíkt flestum stærstu lífeyrissjóðum landsins eiga atvinnurekendur ekki aðkomu að stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga heldur kjósa sjóðsfélagar alla stjórnarmenn beinni kosningu. - pg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×