Lífið

Ráðhúsið í alveg nýju ljósi

Bill Fitzgibbons við „öndvegissúlurnar“ á Ráðhúsinu.
Bill Fitzgibbons við „öndvegissúlurnar“ á Ráðhúsinu.
Safnanótt er haldin annað kvöld með iðandi listviðburðum úti um alla borg. Eftir opnunaratriðið, Ástargöngu um Tjörnina, sem hefst á Austurvelli kl. 18, verður ljósskúlptur Texasbúans Bills Fitzgibbons frá San Antonio við hljóðmynd Sverris Guðjónssonar settur í gang. Ljósi verður varpað á þær hliðar Ráðhússins sem snúa út að Tjörn. Bill segir að hægt verði að njóta verksins hvar sem er við Tjörnina.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessari staðsetningu því mér finnst hún passa svo vel við söguna um upphaf Reykjavíkur, Ingólf Arnarson og öndvegissúlurnar,“ segir hann. „Samlíkingin við söguna eru þessar stóru súlur sem rísa úr tjörninni. Verkið er því óður til upphafs borgarinnar og virðingarvottur við söguna.“

Bill hefur verið að setja verkið upp mestalla vikuna. „Tveir aðstoðarmenn hafa verið í stígvélum í Tjörninni að reyna að detta ekki,“ segir hann og hlær. „Við erum að verða búnir að rigga þessu upp. Þetta verður mikið sjónarspil. Þegar búið er að slökkva er verkið ekki lengur til. Mér finnst sá þáttur ljósskúlptúra áhugaverður. Ég kalla þetta inngrip í byggingarlistina. Verkin hafa ummyndandi kraft því þegar LED-ljósakerfi er sett upp á mikilvægar byggingar sjá borgararnir mannvirkin í alveg nýju ljósi. Fólk gleymir því aldrei. Þetta er mjög áhrifaríkt.“

Þegar verkið verður flutt í fyrsta skipti koma Sverrir Guðjónsson og Kammerkór Suðurlands ásamt Lúðrasveitinni Svani fram. Eftir það verður flutt upptaka af tónlistinni og verkið látið ganga til miðnættis.

Með Fréttablaðinu á morgun fylgir sérrit um dagskrá Safnanætur.- drg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.