Dröfn RE farin á hrefnuveiðar 22. apríl 2010 05:00 Hrefnuveiðimenn eru komnir af stað og lofa fersku kjöti strax næstu daga. mynd/gunnar bergmann
Hrefnuveiðimenn héldu til veiða í gær á Dröfn RE og reikna með að ferskt hrefnukjöt verði komið í verslanir á allra næstu dögum. Félag hrefnuveiðimanna mun gera út þrjá báta til hrefnuveiða í sumar. Einn þeirra var keyptur á dögunum og er verið að gera hann sjókláran þessa dagana í Kópavogshöfn. Vestfirðingar eru að gera klárt og ætla til veiða á næstunni. Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna, segir að Dröfn RE hafi farið í gær til að undirbúa vertíðina. Nauðsynlegt sé að ganga úr skugga um að allt virki sem skyldi, ekki síst byssan. Nýr bátur, sem enn liggur nafnlaus í Kópavogshöfn, sem hrefnuveiðimenn keyptu til veiðanna verður kominn á miðin í byrjun maí. Kvóti vertíðarinnar er 200 dýr, eins og í fyrra, auk þess sem leyfilegt er að færa tuttugu prósent kvótans á milli ára, samkvæmt reglugerð. Því geta hrefnuveiðimenn veitt 240 dýr. Gunnar segir þó ljóst að svo mörg dýr verði aldrei veidd nú. „Við byggjum á innanlandsmarkaðnum og munum því ekki veiða kvótann. Veiðitíminn er mánuði lengri en í fyrra svo við reiknum með að veiða allt að hundrað dýr. Þó verður því haldið opnu og fer eftir eftirspurn.“ Gunnar bindur vonir við nýjar vörur eins og reykt, grafið og kryddlegið kjöt sem kemur nýtt í verslanir í sumar. Alls voru veiddar 83 hrefnur á vertíðinni í fyrra. - shá
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira