Reykjanesfólkvangur að verða ruslahaugur - myndir SB skrifar 23. júlí 2010 15:16 Dekk á víðavangi og tóm skothylki liggja á víð og dreif. Mynd/Ragnar Áki
Bílhræ, tóm skothylki og hálfbrunnar rúmdýnur liggja eins og hráviði í Reykjanesfólkvangi. Göngugarpi ofbauð umgengnin og tók myndir af ruslinu. Starfsmanni Reykjanesfólkvangs blöskrar hvernig fólk kemur fram við náttúruna. Hann ætlar að loka afleggjaranum að námunni þar sem fólk hendir ruslinu og segir standa til að fjarlægja bílhræin og hreinsa svæðið á næstu vikum. „Þetta er þvílíkur viðbjóður. Ég hef ekki séð annað eins á öllum mínum gönguferðum," segir Ragnar Áki Jónsson, 78 ára göngugarpur, sem brá heldur betur í brún þegar hann fór í göngutúr skammt frá Krýsuvík á dögunum. Ragnar gekk eftir Stórhöfðastíg í grennd við malarnámurnar sem er við veginn áður en komið er að Kleyfarvatni og Breiðdal. Afleggjari hjá malarnámunum liggur að námu sem ekki er lengur vinnsla í. Fólk virðist hins vegar hafa ákveðið að breyta námunni í ruslahaug - ruslið er einfaldlega út um allt.Hér sjást tómu skothylkin liggja á víð og dreif.Ragnar Áki„Þarna eru þvottavélar og eldavélahellur. Menn keyra bara þarna og henda drasli út. Ég er nú 78 ára gamall og hef farið víða en ég hef aldrei séð neitt líkt þessu," segir Ragnar sem tók myndavélina með sér og skrásetti umgengnina til að vekja fólk til umhugsunar um það sem þarna á sér stað. Vísir ræddi við Hermann Magnús Sigurðsson, starfsmann Reykjanesfólkvangs. Hermann sagðist meðvitaður um vandamálið á þessu svæði. „Það er nú ekki bara þarna. Því miður. Það eru bílhræ sem hafa verið skilin eftir í Breiðdalnum og svo virðast menn nota svæðið til að æfa skotfimi, menn stilla upp brúsum og flöskum út um allt hraunið og skilja svo allt eftir, skothylkin og ruslið. Það er eins og menn beri enga virðingu fyrir umhverfinu," segir Hermann. Hermann segist ákveðinn að loka afleggjaranum að námunni þar sem mestu rusli hefur verið hent. Hann segir jafnframt það standa til að hreinsa upp svæðið í samstarfi við sumarátak Umhverfisstofnunar. Sú vinna hafi átt að hefjast í síðustu viku en það ekki tekist. Því verði hafist handa í næstu viku, farið með kranabíl og hreinsunarhóp og svæðið hreinsað upp.Hálfbrunnið rúm stingur í stúf við fagra náttúruna.Ragnar Áki„Reykjanesfólkvangur er algjör paradís en því miður er umgengnin ekki alltaf góð. Við settum til dæmis upp skúr fyrir klósett og grill í Krókamýri sem er í nágrenni Djúpavatns. Algjör náttúruperla. En menn komu á bílum, bökkuðu á skúrinn og skutu grillið í tætlur." Hermann segir bara vitleysinga sem haga sér á þennan hátt - fólk sem beri enga virðingu fyrir umhverfi sínu. Brynhildur Magnúsdóttir, umsjónarmaður sumarátaks Umhverfisstofnunar, staðfesti að hópur á þeirra vegum færi í næstu viku að hreinsa svæðið í nágrenni við Vatnskarðsnámur. „Þetta átak hefur verið í gangi í sumar. Við förum á friðlýst svæði og gerum það sem þarf að gera." Og miðað við myndir Ragnars Áka og frásögn Hermanns verður nóg að gera hjá hreinsunarhópnum - sem líklega þarf kranabíl og vinnuvélar til að koma ruslinu af þessu friðlýsta svæði burt.„Þetta er viðbjóður," segir Ragnar Áki um umgengni fólks.Dekk á víðavangi.Ragnar ÁkiJárnrusl á Reykjanesinu.Ragnar ÁkiHálfbrunnin dýna er ekki til sóma á þessu fallega svæði.Mynd/Ragnar ÁkiUndarlegt járnrusl sem skilið hefur verið eftir.Ragnar ÁkiMenn skjóta á flöskur og annað rusl með haglabyssum og tóm skothylki liggja eftir.Ragnar Áki
Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Fleiri fréttir Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Sjá meira