Ekkert svigrúm fyrir frekari niðurskurð 22. apríl 2010 06:00 Almennir lífeyrissjóðir þurfa flestir að skerða lífeyrisgreiðslur vegna slæmrar stöðu sjóðanna í kjölfar hrunsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Tryggingastofnun mun líklega hafa fjárhagslega burði til að taka á sig aukin fjárútgjöld vegna skerðingar á lífeyrisgreiðslum frá flestum stærstu lífeyrissjóðunum án aukaframlags úr ríkissjóði, segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra. „Þetta er auðvitað áfall, og undirstrikar að það er ekkert svigrúm í almannatryggingakerfinu fyrir frekari niðurskurð,“ segir Árni. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær má telja víst að flestir almennu lífeyrissjóðirnir skerði lífeyrisgreiðslur á einhvern hátt á næstunni sökum slæmrar afkomu sjóðanna. Skerðingin verður misjafnlega mikil eftir sjóðum. Þegar lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðunum skerðast hækka um leið lífeyrisgreiðslur frá almenna tryggingarkerfinu, þó hækkunin þar nái ekki að vega upp alla lækkunina sem verður á tekjum fólks. Erfitt er að reikna út kostnaðarauka Tryggingastofnunar vegna þessa, en Árni Páll segir að svartsýnustu áætlanir geri ráð fyrir 1.600 milljóna króna kostnaðarauka á ári. Það myndi þýða um 800 milljóna króna kostnaðarauka það sem eftir er af árinu 2010. Árni Páll segir vel mögulegt að aukin útgjöld Tryggingastofnunar vegna þessa rúmist innan fjárheimilda stofnunarinnar í ár. Það fari þó eftir forsendum í útreikningum á áhrifum skerðinga lífeyrissjóðanna. Spurður hvort ástæða sé til að kalla eftir sérstakri rannsókn á framgöngu lífeyrissjóðanna og stjórnenda þeirra í aðdraganda hrunsins segir Árni Páll sjálfsagt að endurmeta framgöngu lífeyrissjóðanna með sama hætti og annarra. Hann hafi þó engar forsendur til að kalla eftir sérstakri rannsókn á sjóðunum.brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira