Bæjarstjóri Kópavogs: Líf að færast í framkvæmdir 15. ágúst 2010 19:20 Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Yfir 500 íbúðir stóðu hálfkláraðar eða tómar í Kópavogi undir lok síðasta árs. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið miður, en sem betur fer telji hún að líf sé að færast í framkvæmdir að nýju. Fréttastofa fjallaði um ný hverfi sem hafa farið illa út úr kreppunni í fréttum 26. júní síðastliðinn. Í hverfunum hafa framkvæmdir víða stöðvast alveg eftir að bankakerfið hrundi og tóm og hálfkláruð glæsihýsi eru ekki óalgeng sjón, eins og íbúar í efri byggðum Kópavogs hafa fengið að kynnast. Þar dreymir íbúana um að einhver flytji inn í húsin og aukið líf færist í hverfið.Fylgjast náið með framkvæmdum Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa fylgst náið með framkvæmdum við húsin síðan kreppan skall á, en gerð var úttekt á umfangi þessara bygginga undir lok síðasta árs. Þá höfðu aðeins burðarvirki 65 íbúða verið reist, 159 íbúðir voru fokheldar og 155 voru tilbúnar undir innréttingar. 62 íbúðir voru ófullgerðar en í notkun, en 95 íbúðir voru fullbúnar en stóðu auðar. Meirihluti íbúðanna stendur í fjölbýli, en líklegt má telja að ástandið sé svipað í nýjum byggðum annarsstaðar.Segir bankana vera að taka við sér Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir að sveitarfélagið hafi brugðist við með því að leysa til sín lóðir þar sem framkvæmdir hafi ekki verið hafnar, eða frágangur valdið hættu, og gert bragarbót á. Hins vegar geti bæjarfélagið lítið gert ef framkvæmdir eru hafnar og eigendur eru að húsunum. Sveitarfélagið hafi reynt að vera liðlegt við eigendurna, og hafi til að mynda ekki beitt dagsektum á einstaklinga nema í undantekningatilvikum. „Auðvitað finnst okkur þetta miður. Sérstaklega gagnvart íbúunum sem eru þarna í nágrenninu en sem betur höfum við orðið þess vör að núna er að lifna yfir aftur. Það er eins og bankarnir séu að taka við sér," segir Guðrún.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Sjá meira