Lífið

Hætt að væla yfir slæmu umtali

Jessica Simpson. MYND/Cover Media
Jessica Simpson. MYND/Cover Media

Söngkonan Jessica Simpson, 30 ára, segist vera hætt að taka nærri sér hvað aðrir segja um líkamslag hennar eða persónuleika.

Jessica hefur ákveðið að hætta að lesa slúðrið sem er stöðugt skrifað um hana og einbeita sér alfarið að sjálfri sér.

„Ég finn vel fyrir þrýstingnum um að líta alltaf óaðfinnanlega út en það var nú einu sinni ég sem valdi að vera hluti af skemmtanabransanum," sagði Jessica.

„Ég er komin á þann tímapunkt í lífi mínu að ég læt ekki skoðanir annarra stjórna tilfinningum mínum lengur og ég er hætt að væla yfir slæmu umtali og neikvæðum fyrirsögnum."

Jessica er upptekin þessa dagana við að gera aðra syrpu af raunveruleikaþættinum hennar, The Price of Beauty, þar sem fylgst er með ferðalögum sönkonunnar í leit að góðum ráðum til að vaxa og dafna að utan og innan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.