Þjónusta við sjúklinga verulega skert Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. júlí 2010 20:00 Forstjóri Landspítalans segir að nauðsynlegt hafi verið að minnka umsvif spítalans. Mynd/ Anton.
Landspítalinn hefur skorið verulega niður þjónustu við sjúklinga á fyrstu mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Þetta sýnir netútgáfa starfsemisupplýsinga spítalans glöggt, en hún var birt í dag. Meðalfjöldi inniliggjandi sjúklinga hefur minnkað um 12,3%. Á fyrstu sex mánuðum síðasta árs lá 621 sjúklingur inni á spítalanum á hverjum degi. Í ár hefur að meðaltali 545 sjúklingur legið inni á hverjum degi. Að sama skapi hefur komum á göngudeildir fjölgað. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að markvisst hafi verið unnið að því að minnka spítalann og auka þjónustu á dagdeildum. „Eina leiðin til að komast í gegnum þessi fjárlög var að færa þjónustuna á ódýrara stig - frá sólarhringsþjónustu í að þjónustan er veitt að degi til," segir Björn. Hann segir þjónustuna dýrasta þar sem rúmin eru opin allan sólarhringinn. Stóra málið hafi verið að draga úr launakostnaði á kvöldin og um nætur. Skurðaðgerðum fækkað En það er ekki nóg með að innlögnum hafi fækkað heldur hefur skurðaðgerðum fækkað um 4,0% og rannsóknum hefur fækkað um 18%. Björn segir að verið sé að minnka framboð á skurðaðgerðum. Það hafi ekki ennþá skilað sér í auknum biðlistum enda hafi Landlæknir gefið út álit þar sem kemur fram að það sé áhugavert að biðlistar minnki þrátt fyrir að skurðaðgerðum fækki. „Markmiðið er að minnka þjónustuna eins mikið og hægt er án þess að það komi niður á öryggi sjúklinganna og þeirri meðferð sem þeir fá," segir Björn. Einnig sé reynt að hagræða í lyfjakaupum og öðrum innkaupum auk þess sem dregið hafi verið úr framboði á þjónustu.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira