Fékk steypustyrktarjárn í augað og heldur tónleika í kvöld 28. janúar 2010 15:15 Jón Tryggvi Unnarsson. „
Það var eftir að ég lenti í vinnuslysi sem ég ákvað að leggja tónlistina fyrir mig," segir Jón Tryggvi Unnarsson, tónlistarmaður, en hann heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld. Jón Tryggvi lenti í hrikalegu vinnuslysi árið 2007. Þá var hann að vinna sem kranamaður í Hafnarfirði. „Það var byggingafleki sem fauk á mig og þeytti mér á steypustyrktarjárn," segir Jón Tryggvi en járnið stakkst inn í augað á þessum eineygða blúsara með þeim afleiðingum að það klofnaði í tvennt. Í dag er hann blindur á öðru auga. Eftir slysið breyttist allt hjá Jóni Tryggva sem hafði alltaf gengið með þann draum í maganum að gefa út sólóplötu. „Ég var að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gera enda gat ég ekki unnið við það sem ég gerði áður," segir Jón Tryggvi sem lét drauminn rætast - hann tók upp fyrstu plötuna sína sem nefnist Silkimjúk er syndin. Jón Tryggvi spilar þjóðlagablús en aðspurður hversvegna sú stefna höfði til hans svarar hann einfaldlega: „Það hentar mér bara vel." Áður en Jón Tryggvi gaf út sína fyrstu plötu hafði hann reynt fyrir sér víðsvegar. Meðal annars lenti hann í öðru sæti í tónlistarkeppni á vegum Get Reykjavík. Þá hefur Jón Tryggvi unnið sem fyrirsæta. Tónleikarnir með Jóni Tryggva hefjast klukkan hálf átta í kvöld og verða í salnum. Hægt er að nálgast miða á heimasíðunni midi.is. Þá er einnig hægt að kaupa miða við innganginn í kvöld. Fyrir áhugasama má heyra tóndæmi með eineygða blúsaranum hér.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira