Afnám verðtryggingar ekki lausn á vanda skuldugra 10. maí 2010 03:15 Viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag til að ræða um verðtrygginguna. Gylfi Magnússon verður meðal gesta.
Ólíklegt er að breytingar á fyrirkomulagi verðtryggingar gætu á þessu stigi mála leitt til snöggs viðsnúnings hjá einstaklingum í skuldavanda, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem nefnist „Verðtrygging á Íslandi: kostir og gallar“. Hverfi verðtryggingin hækka vextir á móti. Skýrslan er unnin fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra og er aðgengileg á vef ráðuneytisins. Ráðherra verður svo gestur viðskiptanefndar Alþingis á opnum fundi í dag þar sem rætt verður um verðtrygginguna. „Íslensk heimili finna mjög fyrir neikvæðum áhrifum af verðtryggingu á húsnæðislán sem hafa hækkað mikið undanfarið, bæði greiðslubyrði og höfuðstóll. Til að bæta gráu ofan á svart þá hefur verð fasteigna lækkað í verði,“ segir í skýrslunni, sem unnin var af Öskum Capital. Þó segir þar að leitast megi við að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Ekki sé þó sjálfgefið að breytt fyrirkomulag leiði til betri útkomu. Verðtrygging sparnaðar í gegnum lífeyrissjóðakerfið er óneitanlega sögð kostur fyrir heimilin. „Í verðtryggðum lánum felst einnig sá kostur að lánað er fyrir vöxtum og verðbótum, þeim er bætt við höfuðstólinn. Greiðslubyrði er jafnari með hefðbundnu, verðtryggðu jafngreiðsluláni með föstum vöxtum en að öllu jöfnu á óverðtryggðu láni. Þá felst öryggi í verðtryggingu við skilyrði verðhjöðnunar.“ Helstu ókostirnir við verðtryggingu eru sagðir hækkandi höfuðstóll og þar með hækkandi veðhlutfall fasteigna og aukning greiðslubyrði. Sömuleiðis er bent á að greiningaraðilar hafi kerfisbundið vanspáð verðbólgu. „Á þeim grundvelli má halda því fram að heimilin hafi tekið á sig alla áhættu varðandi verðbólguþróun.“ Fram kemur að verðtrygging sé almennari hér á landi en víðast annars staðar, en hana sé helst að finna í löndum sem búi við óstöðugan, lítinn gjaldmiðil og mikla verðbólgu. Ekki er talið fýsilegt að banna verðtrygginguna, en sé vilji til að auka vægi óverðtryggðra lána og fjárfestingarkosta væri ef til vill eðlilegt að ríkið hefði forgöngu í þeim efnum og yki óverðtryggða útgáfu sína. Þá segir í skýrslunni að við fyrstu sýn virðist ekkert benda til þess að afnám verðtryggingar þyrfti að fylgja upptöku evru. „Hins vegar er ljóst að stöðugri gjaldmiðli fylgir minni þörf fyrir verðtryggingu í því skyni að auka trúverðugleika hagstjórnar.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira