Jóhanna: Þetta var sameiginlegt strand 17. apríl 2010 13:29 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Samkrull atvinnulífs, stjórnmála og stjórnsýslu reyndist vera höfuðmeinsemd í íslensku þjóðfélagi, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. „Horfumst í augu við það. Þetta var sameiginlegt strand þar sem einn á meiri sök en annar en við flest létum það eigi að síður viðgangast eða fengum ekki við ráðið," sagði Jóhanna í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrr í dag. „Ég vil byrja á því að segja að það er engin eftirspurn eftir „ekki benda á mig" leiknum. Við getum ekki og eigum ekki að bregða okkur í hlutverk varðstjórans sem var að æfa lögreglukórinn. Engu að síður er það skylda okkar að reyna eftir fremsta megni að skilgreina ástæður þess og orsakir að illa fór. Og okkur ber að viðurkenna að Samfylkingin var hluti af því samfélagi sem lét það líðast að viðskiptablokkir tefldu þjóðarhag í stórkostlega hættu og töpuðu taflinu með hrikalegum afleiðingum fyrir landsmenn alla."Smituðumst af hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar Jóhanna sagði að Samfylkingin hafi staðið gegn hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar en engu að síður smitast af henni undir merkjum Blairismans svokallaða, sem hafi verið tilraun til þess að tengja saman hugmyndir jafnaðarmanna og drifkrafta markaðsaflanna. „Það má segja að við höfum - um tíma að minnsta kosti - vikið frá þeirri norrænu hugsun að pólitíska valdið eigi að vera mótvægi við markaðsöflin en ekki meðspilari þeirra."Samfylkingin átti að bregðast við Jóhanna sagði brýnt að Samfylkingin nýtti rannsóknarskýrsluna til þess að læra af henni. „Enda þótt Samfylkingin verði ekki sökuð um að bera ábyrgð á hugmyndafræðinni eða einkavinavæðingunni sem eru rætur ófaranna í fjármálakerfinu þá er ljóst að við vorum hluti af ríkisstjórn sem hefði samkvæmt skýrslunni getað minnkað skaðann með markvissari viðbrögðum. Þar liggur ábyrgð Samfylkingarinnar."Um ákvörðun Björgvins Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, hefur vikið úr formennsku þingflokksins og tekið sér hlé frá þingstörfum vegna starfa þingnefndarinnar og þeirra ábendinga sem fram koma í skýrslunni. Um þá ákvörðun sagði Jóhanna: „Ég ber virðingu fyrir ákvörðunum hans og veit að þær gerir hann í þágu Samfylkingarinnar og til þess að valda félögum sínum á þingi og í flokki sem minnstum vandkvæðum."Boðar rannsókn á einkavæðingu bankanna Í ræðu sinni fjallaði Jóhanna um einkavæðingu bankanna. „Ég hef áður sagt að ég myndi vilja bíða niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar áður en tekin yrði ákvörðun um sérstaka rannsókn á einkavæðingu ríkisbankanna. Það er augljóst af framansögðu að hennar er þörf og og ég segi það hér að það verður undirbúið."
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira