Innlent

Vilja aukafundi vegna fjárhagsáætlunar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Mynd/ GVA.
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Mynd/ GVA.
Sjálfstæðismenn fara fram á aukafundi í öllum fagráðum borgarinnar vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir komandi ár.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekuðu, á fundi borgarráðs í dag, áhyggjur sínar af því hversu seint undirbúningur og forgangsröðun fjármála hefst. Áður hafi verið bent á það að samkvæmt samþykktri tímaáætlun hafi þessi vinna fagráða vegna fjárhagsáætlunar að átt hefjast í júní og ljúka í ágúst. Nú um miðjan september sé þessi vinna varla hafin.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að í ljósi þess að fyrri óskir um að meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar hefji þessa vinnu í öllum fagráðum hafi ekki borið árangur, krefjist þeir nú aukafunda þar sem þessi umræða fari fram.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins segir í tilkynningu að gríðarlega mikilvægt sé að línur vegna þessarar miklu vinnu fari að skýrast. „Við höfum ítrekað gert athugasemdir við það hversu seint þessi vinna hefst og hversu skammt á veg hún er komin. Ennþá hefur ekki verið ákveðið hvaða meginlínur skuli gilda í komandi fjárhagsáætlanagerð, hvort skattar verði hækkaðir, hvort gjaldskrár verði hækkaðar, hvort gripið verði til uppsagna starfsfólks eða hvort einhver þjónusta við borgarbúa verði skert. Þetta er eitt mikilvægasta verkefni borgarstjórnar og það þolir ekki frekari bið,“ segir Hanna Birna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×