Fótbolti

Gunnar Þór til KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Þór Gunnarsson.
Gunnar Þór Gunnarsson.
Gunnar Þór Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við KR og hefur hann samið við félagið til eins árs. Frá því er greint á heimasíðu KR.

Gunnar hefur leikið í Svíþjóð undanfarin fimm ár en Fréttablaðið greindi frá því fyrr í mánuðinum að hann væri á heimleið.

„Ég þarf að koma mér aftur almennilega af stað og finna mitt fótboltaform á ný. Ég held að það sé best að gera það heima þar sem ég get líka fundið mér eitthvað annað að gera, hvort sem það er nám eða vinna," sagði Gunnar þá.

Gunnar er 25 ára gamall varnarmaður en byrjaði að spila með meistaraflokki Fram átján ára. Hann á að baki 54 leiki í deild og bikar með Fram og þrjá með A-landsliði Íslands, alla árið 2007. Hann lék 26 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Hann hefur verið hjá Norrköping undanfarin þrjú ár en hóf feril sinn í Svíþjóð hjá Hammarby þar sem hann var í tvö tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×