Innlent

Nokkur fíkniefnamál í Vestmannaeyjum

Hressir strákar á leið á þjóðhátíð.
Hressir strákar á leið á þjóðhátíð.
Samkvæmt varðstjóra hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum er eitthvað að fólki komið til eyjarinnar. Margir af þeim eru í „yngri kantinum“, eins og hann orðaði það. Þá er einhver ölvun hjá fólki en engin alvarleg atvik hafa komið upp.

Einhverjir hafa verið teknir með lítilræði af fíkniefnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru það mest efni ætluð til einkaneyslu - aðallega maríjúana. Búist er við mörgum til eyjarinnar á morgun en lögreglan er með mikið eftirlit alla helgina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×