Vilja póstsamskipti Jóhönnu við Láru vegna launamáls seðlabankastjóra Höskuldur Kári Schram skrifar 21. maí 2010 18:45 Tryggvi Þór Herbertsson.
Fulltrúar minnihlutans í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir að sjá tölvupóstsamskipti forsætisráðuneytis og formanns bankaráðs Seðlabankans þar sem launamál Seðlabankastjóra eru rædd. Þingmenn vilja fá úr því skorið hvort forsætisráðherra hafi sagt sannleikann í málinu. Deilt er um það hvort starfsmenn forsætisráðuneytisins hafi gefið Má Guðmundssyni, seðlabankastjóra, fyrirheit þegar hann var ráðinn á sínum tíma um að laun hans yrðu ekki skert í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Lára V. Júlíusdóttir, formaðu bankaráðs Seðlabankans, vísaði í þessi fyrirheit þegar hún lagði fram þá tillögu í bankaráði Seðlabankans að laun bankastjóra yrðu hækkuð um 400 þúsund krónur. Hér greinir menn á því forsætisráðherra hefur ítrekað vísað því á bug að hún eða starfsmenn ráðuneytisins hafi gefið slíkt loforð. Lára V. kom fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis í morgun og í kjölfarið óskaði minnihlutinn eftir því að fá aðgang að tölvupóstum milli hennar og forsætisráðuneytisins. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson, segir grafalvarlegt ef í ljós kemur að forsætisráðherra hafi farið með ósannindi í málinu. „Það er ljóst ef að Má hafa verið gefin þessi fyrirheit úr forsætisráðuneyti og að forsætisráðherra segir að hvorki hún né hennar fólk hafi gefið þessi fyrirheit þá er ljóst að það er einhver að segja ósatt miðað við þetta þá er hægt að færa sönnur á það í tölvupóstssamskiptum," segir Tryggvi Þór.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira