Innlent

Óvenju mörg skip búin með kvótann og liggja við bryggju

Óvenju mörg fiskiskip eru búin með kvóta sína á þessu fiskveiðiári og leiggja nú bundin við bryggjur.

Þessi staða er komin upp þrátt fyrir að margar útgerðir hafi dregið verulega úr sókn snemma í vor, til að spara kvótann fram eftir árinu. Óvenju góð aflabrögð skýra þessa stöðu, en ástandið er farið að hafa áhrif á landverkafólk.

Sumarstopp í fiskvinnslustöðvum hafa verið lengd víða á landinu og annarsstaðar er minna að gera en ella. Það er hinsvegar kraftur í strandveiðunum, en kvótinn er svo lítill í águst, að hann fer að kárast á sumum svæðum alveg á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×