Innlent

Eldsvoði reyndist vera pítsubakarar

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Sjúkraflutningamenn hafa farið í 30 útköll í dag þar af tvö útköll út á land. Rólegt hefur verið hjá slökkviliðinu á höfuðborgasvæðinu í dag en þeir fengu eitt útkall í morgun um eldsvoða á pítsustað í miðborginni.

Þegar þeir komu á vettvang kom í ljós að reykur sem kom frá húsinu reyndist vera úr skorsteini hússins. Þá höfðu bakarar verið að hita ofninn með þeim afleiðingum að nágrannar héldu að um eldsvoða væri að ræða.

Annars er slökkviliðið við æfingar á Granda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×