Baltasar gerir kvikmynd eftir einleik Jóns Atla 3. febrúar 2010 05:45 Baltasar Kormákur ætlar að gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla, Djúpinu. Sá einleikur er innblásin af ótrúlegu þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar sem komst einn lífs af þegar Hellisey VE-503, sökk við Vestmannaeyjar í mars 1984.
Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpinu. Hann sótti innblásur sinn til ótrúlegrar þrekraunar Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að skip hans, Hellisey VE-503, fórst við Vestmannaeyjar aðfaranótt 11.mars árið 1984. Fjórir vinir Guðlaugs fórust en hann komst einn lífs af eftir að hafa synt rúma fimm kílómetra og verið sex tíma í ísköldu Atlantshafinu. Baltasar viðurkennir að hann hafi lengi dreymt um að gera mynd sem byggði á þessum atburðum. Hann hafi hins vegar ekki fundið neinn flöt á þeim fyrr en hann sá æfingu á Djúpinu eftir Jón Atla með Ingvari E. Sigurðssyni í hlutverki skipsbrotsmannsins í Borgarleikhúsinu. Hann tekur hins vegar fram að kvikmyndin verði sjálfstætt verk þótt vissulega byggi það á einleiknum og atburðunum við Stórhöfða. „Ég talaði við Jón Atla strax eftir æfinguna og við fórum að vinna handritið. Sú vinna hefur bara gengið það vel að þetta er að verða að veruleika," segir Baltasar en myndin fékk vilyrði fyrir styrk hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands nýverið og er nú beðið svara hjá Norræna kvikmyndasjóðnum. Baltasar segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvaða leikarar komi til greina í aðalhlutverkið en útilokaði þó Ingvar E. Sigurðsson. „Ég ætla samt ekki að fara binda þetta við eitthvað aldursbil eða útlit en Ingvar hentar einfaldlega ekki í þetta hlutverk," segir Baltasar en viðurkennir um leið að hann sé með nokkra leikara í sigtinu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stóð til að ráðast í gerð kvikmyndar eftir bók Arnaldar Indriðasonar, Grafarþögn, en leikstjórinn segir hana hafa verið setta til hliðar um stundarsakir. „Arnaldur er að skrifa handritið en vegna anna hjá honum hefur það dregist aðeins á langinn. Þannig að þetta verkefni fer framfyrir röðina."-freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira